Ég á við vandamál að stríða. Þannig standa málin að ég er hrifinn af stelpu sem ég kynntist í gegnum vinnu í júní. Ég er alls ekki reyndur í svona málum, þannig að … ;) Ég man eftir því þegar hún kom inn í búðina þegar ég sá hana fyrst. Ég missti mátt í löppunum og varð að setjast. Daginn eftir kom hún aftur og ég ætlaði að fara að biðja hana um númerið og reyna við hana, en hún kom þá til að sækja um vinnu. Þannig að ég geymdi það aðeins. Ég, með mín sambönd í vinnunni, náði að redda henni...