Undarlegasti og sá draumur sem ég man mest eftir var svona : Ég var heima hjá ömmu minni. Þetta var bara eins og hvert annað kaffiboð, öll fjölskyldan að éta kökur og chilla. Síðan allt í einu koma svona 5-8 köngulær, mjög margvíslegar að gerð og stærð, og byrjuðu að elta mig og 2 bræður mína. Ég fattaði strax að til þess að sleppa verð ég að standa ofan á sófanum, 2 bræður mínir gerðu það sama. Eftir nokkra stund föttuðu köngulærnar hvernig áttu að klifra uppá sófann þannig að ég hljóp um...