Við skýin felum ekki sólina af illgirni *klapp klapp klapp* Við skýin erum bara að kíkj'á leiki mannanna. Við skýin sjáum ykkur hlaupa, vúúúúúpp, í rokinu. Í gulum, rauðum, grænum, bláum regnkápum. Eins og regnbogi meistarans, regnbogi meistarans! Við skýin erum bara grá, bara grá. Á morgun kemur sólin, hvað verður um skýin þá?