Þegar ég var níu ára lenti ég í því að hlaupa og detta á hornið á steinhellu…braut svo mikið af einni framtönninni að ég reif rótina og taugar í sundur. Svo þegar ég var sex eða sjö ára, þá var ég sendur til einhvers manns til að láta rífa úr mér tvo jaxla, sem er ekki frá sögu færandi nema það að þegar það á að svæfa mig, þá notar hann eitthvað annað gas og of mikið af því. Ég steinrotaðist náttúrulega og vaknaði ekkert eftir þetta, og þurfti að fara með mig sofandi heim, síðan vakna ég...