Komið sæl. Þetta er ritgerð sem ég skrifaði fyrir sögu 103 í MH. Eins og titillinn segir þá fjallar þetta um ferð hertekna fólksins úr Tyrkjaráninu og vist þeirra í Norður-Afríku. Vinsamlegast ekki afrita hana ef þið eruð að gera um sama efnið en endilega notið heimildirnar. Nú er um 382 ár liðin frá þeim sorglega atburði sem átti sér stað á Íslandi árið 1627, Tyrkjaránið. Margt hefur verið skráð og skrafað um þennan atburð og sögurnar borist frá öfum og ömmum til barna og barnabarna allt...