Sko, þetta var frumgerð þýðingarinnar, var að klára þetta svo þetta virkaði. Er með mun betri þýðingu núna sem er talsvert betri. Skemmtilegt samt að sjá hvernig svona fréttir breiðast yfir netið :P -Igniter 44
Sko, þetta var frumgerð þýðingarinnar, var að klára þetta svo þetta virkaði. Er með mun betri þýðingu núna sem er talsvert betri. Skemmtilegt samt að sjá hvernig svona fréttir breiðast yfir netið :P -Igniter 44
Ertu búinn að prófa marga vent netþjóna? Ef þú ert bara búinn að prófa t.d. 2 getur alveg eins verið að það séu bara netþjónarnir sem eru að hiksta en ekki ventið þitt sko.
Sko. 1) Hvað ertu búinn að eiga tölvuna lengi? 2) Hvað ertu búinn að spila tölvuleiki á henni lengi? 3) Ertu viss um að þú sért ekki með hana á heitum stað, t.d. ofan á rúminu eða kodda? 4) Heyrirðu að viftan í tölvunni snúist? Láttu okkur vita!
Heyrðu, ég er víst búinn að fatta vandamálið. Hjá ZyXEL routerum eru tvö lykilorð. Lykilorðið user til að sjá ástand routerins og lykilorðið 1234 fyrir admin. Ég fékk routerinn hjá Vodafone og hann var forstilltur svo þeir hafa líklega breytt lykilorðinu á admin. Ég þarf bara að endurstilla routerinn til að fá lykilorðið 1234 aftur. Takk samt!
Sko, eins og ég var að segja get ég ekkert gert þegar ég skrái mig inn á routerinn vegna þess að ég hef ekki aðgang að því. Ég get einfaldlega ekki breytt neinu þegar ég skrái mig inn á routerinn. Þess vegna var ég að velta því fyrir mér hvort mismunandi lykilorð gæfu mismunandi aðgang. Bætt við 11. febrúar 2008 - 20:00 Er það ekki annars þannig að þú skráir þig inn á routerinn með því að fara á vefsíðuna http://192.168.1.1/ ?
Jújú, nema hvað fólk segir að ef þú opnir port að þá náit þú betri tengingu. Ég fæ líka merkið, “No incoming connections” Check if your port is open. Ég segi check og það kemur “Port seems not to be open”
Tja, ég nota stundum www.stage6.com og þetta er klassa síða. Hélt fyrst að þetta divx forrit væri vírus en svo sagðir bigmother mér (Notand hér á Huga) að þetta væri vírusfrítt svo ég prófaði þetta og ég var geggjað hrifinn. Stage6 er góð síða
Hey, ég ætla líka að benda á eitt. Xbox 360 Elite hefur líka það yfir Xbox 360 Premium að það er betra kælikerfi í henni. Með því að halda henni kaldari aukast afköstin í henni (Afar lítið samt). Það er nefnilega þannig að þegar tölva hitnar mjög mikið verður hún seinvirkari. Það er hreinasta satt! ;-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..