Sólstafir, Forgarður Helvítis og Hrafnaþing munu rokka þakið af húsinu! Sólstafir eru að hita upp fyrir Evróputúr, en þeir munu spila á rúmlega 30 tónleikum í alls 12 löndum. Hrafnaþingið hefur ekki sést á sviði í 4 ár, og er alls óvíst hvenar það gerist næst. Svo eru Forgarður Helvítis kannski elsta band á Íslandi, en þeir eru líka klikkaðastir!