Hér er sjónvarpsköku uppskrift sem ég er búin að baka í margar aldir og alltaf jafn góð! ( kannski ekki aldir en samt….) Til að fullgera kökuna um 45 mín. Að búa til deigið 15-20 mín, bakstur 15 mín fyrst, síðan 10 mín í ofninum með bráð. Hiti 175°C botninn, 200°C með bráð á. ( Vonandi að þið fattið hvað ég er að tala um, hehe) Botninn: 4 egg 3 dl sykur 4 dl hveiti 2 tsk lyftiduft 50 g smjörlíki, brætt 2 dl mjólk 1 tsk vanilludropar Stillið ofninn á 175°C, smyrjið ofnskúffuna og...