Ég fann þessa uppskrift af pizzubotni í einni af Hagkaupsbókunum…..:) Hér er semsagt uppskrift af pitsudeigi: 40 ml vatn 20 ml pilsner 40 ml olía 15 g pressuger salt 250 g hveiti plús durum hveiti, til að fletja út Blandið vatni, pilsner og olíu saman í skál, hafið vökvann ylvolgan eða um 38°C heitan, setjið pressugerið út í og leysið það upp. Setjið hveiti út í og leysið það upp. Setjið hveitið út í vökvann, hnoðið deigið vel í skálinni og saltið. Hnoðið deigið áfram á borði, mótið í kúlu...