Mikið klink, bókasafnskort, debetkort, þrjú platkort sem fylgdu með veskinu (Sem er náttúrulega bara ofur svalt!), einhvern miða sem ávísast sem Iron Maiden miði, tvær passamyndir af mér og vinkonum mínum, 7 dollarar, 4 þúsundkallar, fimmhundruðkall, kvittanir, nafnspjaldið hjá pabba mínum og 3 frá gamla tannréttingartannlækninum (Svona hvenær á að mæta næst), inneignarnóta í Bónus upp á 735 kr. og svo miða um að ég hafi verið að skipta norskum pening yfir í íslenskan. Vá, þetta var mikið