Ég ætlaði að fríka út þegar villuskilaboðin komu fram, hélt að tölvan hefði hrunið. Ótrúlega frumlegir gaurar. Svo eru að sjálfsögðu allir effectarnir sem koma óhjákvæmilega á meðan maður spilar sem Alex. Fljúgandi bækur í bókasafninu, bank á hurðum, einu sinni hætti bankið og hljóð kom eins og einhver hefði gengið inn í húsið og farið upp á efri hæð og væri þar í góðu tsjilli. Svo hringir stundum síminn, ef maður svarar heyrir maður gaur segja:“Remember me, Alex?” og skella síðan á. Þetta...