Ég þarf að játa á mig að þessi grein er svolítið hálf bökuð, en þannig eru kringumstæðurnar einnig. Nú hefur komið í ljós samkvæmt Fréttablaðinu í dag að yfirmaður löggæslumála í Alþýðulýðveldinu Kína (opinbert nafn), Luo Gan, sé væntanlegur í opinbera heimsókn næstkomandi sunnudag. Mun hann meðal annars heimsækja Alþingi og Hæstarétt svo eitthvað sé nefnt. Luo þessi er talinn einn af mönnunum á bak við “afrekin” á Torgi hins Himneska Friðar hér um árið ásamt því að hafa yfirumsjón yfir...