EF ég myndi selja myndi ég vilja fá slatta fyrir hann vegna tilfinningalegs gildis plús það hvað ég er búinn að eyða miklum tíma í hann. En það þyrfti mikið að ganga á í mínu lífi til þess að ég færi að selja þennan, þannig að ég get ekki komið upp með einhverja ákveðna peninga upphæð.
það er nú einhverjar lakkleifar á honum en áður en ég lakkaði hann á sínum tíma bar ég á hann danish olíu sem fór vel ofan í viðinn. Ég var að spá í að lakka yfir hann núna en ég eiginlega bara fíla hann svona hráan og sjúskaðann…dáldið eins og rekaviður:)
hehe sú mynd var nú bara helmingurinn af safninu. Mynd af öllu safninu bíður nú samþykkis:) Bætt við 27. mars 2008 - 19:41 og jú það er sjúkt að spila á hann:)
hehemm… það er náttúrulega ekki hægt að bera þá saman í gæðum. á skalanum 1-10 er spilverk SG-inn svona 4, en Gunnars SG-inn svona gróflega reiknað…. 12:)
jebb en enginn venjulegur bassman. Þetta er magnari sem ég fékk af honum Þresti hérna á huga. Það eina sem er original á þessum magnara er cabinettið. ég læt þennan link segja alla söguna um hann. http://www.hatcheramps.com/neatthings.htm Ótrúlega gott sánd í þessum magnara, Stock bassman hljómar eins og kettlingur við hliðina á þessum:) Snilldin við þennan magnara er fídus sem Þröstur hannaði. maður getur keyrt lampana upp í brjálað overdrive á íbúðarhæfu volume-i.
Hef prufað rauða SG-inn frá þeim í gegnum Fender champion 600 magnara og var mjög sáttur. Veit ekki hvernig pikkuppa þeir nota en þeir sánda allveg þokkalega. Svo er örugglega mjög fróðlegt að skella einhverjum dúndur pikkuppum í hann:) Annars fínar spýtur.
þetta gekk svona eiginlega upp og ofan en endaði ótrúlega vel. Það gekk mjög vel að púsla saman og bora fyrir öllu draslinu en ég held að ég sé búinn að fara í gegnum svona 5 mismunnandi hálsa. Sumir hálsana sánduðu mjög vel en lúkkuðu frekar illa og einnig lúkkuðu sumir svaka flott en drápu tóninn gersamlega. Svo fékk ég þennan Morris háls frá honum Gunnari Erni sem hann var búinn að strípa og lakka svo upp á nýtt. Allger Guðs gjöf fyrir þennan gítar, lúkkar frábærlega og sándar eins og...
action er fljarlægðin frá strengjunum að hálsinum, samanber hversu þægilegt er að spila á hann. Bætt við 24. mars 2008 - 21:52 og já , hvað er hann sirka gamall?
hot rod magnarar eru mjög vinsælir í indie/postrock stefnuni. Bæði DELUXE og DEVILLE eru kjörnir í þessa stefnu. Nick Zinner í yeah yeah yeahs hefur frá upphafi notað hotrod DEVILLE (2*12) einnig hef ég séð sonic youth nota þessa magnara live og einnig mogwai. mjög töff indie clean sánd. ég myndi segja að þú værir kominn á sporið:)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..