Hæ ég heiti Friðjón og ég er brisfruma. Ég bý í líkamanum hans Gunna og tek virkan þátt í samfélagi frumnanna. Ég hef þó ýmsar hugmyndir um það sem betur mætti fara. Hér ríkir nefnilega ægilega mikil miðstýring. Ég gæti nú alveg séð fyrir mér betra skipulag. Ef að miðstýring í líkamanum væri minni þá gæti ég sko söðlað um. Farið og fjölgað mér allrækilega. Enginn að segja mér hvar ég ætti að vera. Bara sú fruma sem nær að stækka sem mest og fjölgar sér hraðast fyrir minnstu orkuna ætti...