Sæl, öll. Gummi heiti ég og bý í mosfellsbænum. Ég fékk mér gat í hægra eyrað fyrir einhverjum 2 árum síðan, það var bara gert með byssu á Pílus Hárgreiðslustofu. Ég var með þann lokk í svona 2 mánuði, svo gaf pabbi mér lokka í jólagjöf, geggjað töff, en ég týndi báðum festingunum, og hætti að ganga með lokk í því eyra, en gatið er þarna alltaf. Svo fyrir svona 3 vikum fór ég aftur á pílus og fékk mér í vinstra eyrað, og er auðvitað ennþá með byrjandalokk í því, samt spurning hvort ég breyti...