Ég var í áramótaveislu hjá frænda mínum, held að þetta hafi verið gamlárskvöld 2004. Þegar klukkan var að nálgast miðnætti þá fórum við öll út að sprengja flugelda. Frændi minn sem er ári yngri en ég fékk blys. Og fyrir slysni beindi hann því að olnboganum mínum. Húðin á olnboganum mínum leit út eins og sprungin pylsa!