Keflavík er Íslandsmeistari í Iceland Express deild karla í körfuknattleik eftir frábæran 98-74 á Snæfellingum í þriðja leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins. Jafnt var á með liðunum framan af leik en Keflvíkingar reyndust mun sterkari í síðari hálfleik og unnu verðskuldaðan sigur og því lauk einvígi liðanna 3-0 fyrir Keflvíkinga. Tommy Johnson var stigahæstur hjá Keflavík með 24 stig en Gunnar Einarsson sem valinn var besti maður úrslitakeppninnar gerði 20 stig í leiknum. Þrír leikmenn...