Afhverju ertu að selja þetta? Hversu lengi hefurðu átt þetta og í hvaða ástandi eru hlutirnir? Bara svona spurningar sem fólk gæti verið að velta fyrir sér.
Já var líka að pæla í þessu. Allir þjálfararnir í enska boltanum með svona. Og til að svara hinum notendanum: nei ekki míkrafónn, þetta er eitthvað tákn
En það þurfti nú að koma fram að þetta væru Iron Maiden gítarleikarar… annars hefðu komið kvartanir eins og: það vantar Kurt Cobain og Jimi Hendrix… Eða þú veist þetta var greinilega Iron Maiden aðdáðandi sem samdi könnunina og langaði að sjá hvað hljóðfæraleikurum fyndist um þessi idol sín. Það sem mér fannst gott við þessa könnun var að allir gátu svarað. ef þú hlustar ekki á Maiden (eins og ég) þá var valmöguleiki fyrir það. Og ef þú ert harcore Maiden fan þá var líka óÞarfi að gera uppá...
Æi mér finnst þetta allt í lagi. Frumlegri en margar kannanir sem koma á þetta áhugamál og þó hún sé ekki öllum viðkomandi þá er samt einhver hluti hér sem hlustar á þetta. Og hann spyr um hljóðfæraleikara þannig að þetta á alveg heima hér að mínu mati. Það er svipað og þegar trommarar spyrja trommutengdra spurninga… kemur mér ekkert við en á samt heima hérna… En þetta er matsatriði eins og annað
Hvernig gítar ertu að tala um? Rafmagns, kassa eða jafnvel klassískan gítar? Ættir að finna einhverja byrjendapakka sem henta þér í flestum hljóðfæraverslunum og svo sakar að sjálfsögðu ekki að fara í tónlistarskólann! Stundum geta þeir reddað gítar en það er þó alltaf betra að eiga sinn eiginn held ég. Nema þú viljir freka safna þér upp í betri gítar og fáir þá afnot af þeirra gítar fyrst.
á líka marine band hérna einhverstaðar… kominn ógéðsleg fýla af henni, en fín munnharpa engu að síður held ég… reyndar er einn tóninn eitthvað ónýtur, en skiptir litlu þar sem ég nota hana sama og ekki neitt
verða að vera lög sem maður semur… annars kæmu trilljón upptökur af nothing else matter og stairway to heaven… plús að það er miklu skemmtilegra að heyra frumsamið… Mætti þó kannski senda inn breittar útgáfur af annara manna lögum… þá á ég við ef þú tekur eitthvað frægt lag og setur virkilega þinn svip á það….
sjálfálitsspurning… þarft ekkert að vera egó til þess að svara játandi =) ég reyndar sagði nei vegna þess að ég veit að það er margt sem ég kann ekki. Kann ekki einu sinni að lesa nótur og það finnst mér mjög mikilvægt. Hef hins vegar ekki nægan metnað í að læra þetta allt. En jújú ágætis könnun svosem
rosalega þoli ég þessi íslensku nöfn ekki. Þó að ég sé alfarið með því að íslenska öll heiti þá er maður bara svo vanur sumum að þetta hljómar fáránlega… svo er líka gott að setja ensku nöfnin í sviga fyrir aftan þau íslensku þegar maður er að sýna kunnáttu sína svona ;)
Já það getur verið erfitt að finna almennilegt nafn. Gamla bandið mitt fór í gegnum nokkur “prósess” áður en við urðum nokkuð ánægðir… bara halda áfram að leita og vera frumlegir!
notaðu þá þá =p Veit að effectinn væri til þess að nota live en ég held að það sé bara flottara að hafa gítarinn clean heldur en að líkja eftir kassagítar.. en auðvitað ef þér finnst þetta flottara þá gerðu það!
Erum við það ekki öll Alla vega á okkar hátt. Annars er þetta alveg fáránlegt að svona skuli ekki vera “eins” á öllum tungumálum. Svipað vitlaust og að það skuli ekki allir nota sama mælingarkerfið(metrar-mílur o.s.frv) og að það aki ekki allir allsstaðar á sama vegarhelmingnum. En ég er víst kominn langt út fyrir umræðuefnið :p
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..