Sko .. Mig langar að koma því á hreint að ég hygg ekki á neina samkeppni við einn né neinn. Hvorki í fréttaflutningi, né í skipulagningu og stjórnun. Og þótt ég vildi þá hef ég ekki tíma í slíkt dæmi. Þeir sem eru að fórna sínum persónulega tíma í að standa í þessu (skipulagi og fréttaflutningi) er ég mjög þakklátur og eiga hrós skilið, alveg hiklaust. Menn þurfa þó að geta bent á hluti sem meiga fara betur, og tekið við ábendingum, án þess að neitt sé í neinum leiðindum. Það vill oft verða...