Eins og sagt ofar, byrjaðu á 1-2mm og svo stækkað 1-2 mm á viku. Nota sleipiefni án aukaefna, en EKKI vaseline (gerir erfiðara fyrir sárið að anda = gróa). Gott að reyna að teygja á þessu þegar þú ert í heitri sturtu, en þá bara rétt áður en þú ert á leiðinni út úr sturtunni (svo snepillinn sé orðin svolítið lufsulegur). Það er líka best að stækka með stáli eða surgical glass og geyma svo akrílinn og fílabeinin þangað til seinna, en auðvitað er hægt að stækka með því líka.