Þetta er hann Hjalti Sævar óþekktarormur sem vill ekki sofa í rúminu sínu og kemur því bara fram með koddann sinn og sængina og leggst frekar á gólfið inni í stofu.
Þennan fína skenk fengum við gefins frá fólkinu sem bjó í íbúðinni okkar á undan okkur. Mér finnst hann nú bara agalega sætur. Það á reyndar að vera spegill í honum, en hann brotnaði. Ætlum við tækifæri að láta sníða nýjan spegil í hann ;)
Svanhildmeð yngra barninu sínu, en nú er búið að taka bæði börnin af henni á þeim forsendum að hún sé með svo lága greindarvísitölu að hún geti ekki hjálpað þeim með heimalærdóminn í framtíðinni.
Arna Valdís, 3ja ára listakona og tölvusnillingur, teiknaði þessa mynd alein, án nokkurrar aðstoðar, í tölvunni minni ;) Þetta eru ég og pabbi hennar og Hjalti Sævar litli bróðir hennar :D
Var að kaupa sumarhúfuna á drenginn, enda eru allar húfurnar sem hann á allt of heitar í þessu dýrðar veðri sem hér er núna (Sól og blíða og 20 stiga hiti í skugganum). Mér finnst Hjalti vera alveg eins og lítill Emil í Kattholti þarna. Vona samt að hann verði ekki alveg eins mikill óþekktarormur.
Litla listakonan mín (Arna Valdís, 3ja ára og 2ja mánaða) var að teikna mynd af okkur foreldrunum. Við erum víst bæði með fiska í höndunum (don't ask me why) og ég er að taka fiskinn af pabba hennar (þvílík frekja). Svo auðvitað áritaði hún myndina með A-i (reyndar tveimur ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..