Takk fyrir að hakka mig ekki í spað fyrir þessa skoðun. Eins og ég reyni að láta í ljósi, þá er þetta mín skoðun og mér er alveg ljóst að hún er ekki algeng, miðað við þessar gríðarlegu vinsældir. Það má vera að þeir persar sem ég hef hitt á hafi barasta verið með eitthvað viðhorfsvandamál, og það finnst mér miður. Þeir eru allir hreinræktaðir, 3 af þessum 7 sem ég hef komist í tæri við eru í eigu ræktandans sem er kunningjakona mín. En þetta er sjálfsagt bara afar smekksbundið, rétt eins og...