Ég ætla segja hér aðeins frá krossferð minni um Sverð Ströndina í Gleymdu Vettvöngunum. Ég vaknaði snemma um morguninn, eina sem ég heyrði var það sem fóstri minn, Gorion, hafði sagt við mig áður. Hann hafði dælt í mig peningunum og sagt mér að byrgja mig upp fyrir komandi átök, en ég var ekki viss hvernig átök, eða hvað stóð til. Þannig að ég skellti mér á eina hótelið í krummaskurðinu Kertaviðurværi. Þar tók Winthrop, maðurinn sem sá um hótelið, vel á móti mér og ég átti verzlunarskipti...