Barði er frábær listamaður. Mín skoðun er sú að þegar hann fór úr þættinum var hann að halda í þá “hefð” sína að ræða aldrei um prívatlífið sitt í fjölmiðlum. Einnig er þetta ábyggilega það sem hann vildi, að fólk tali um þetta atvik, þetta var einskonar gjörningur. Þegar við sjáum hann í fréttum og viðtölum sjáum við listamanninn Barða, ég er alveg viss um að hann sé allt öðruvísi persónulega. Hann sagði líka í Íslandi í dag daginn eftir að hann talaði ekki um einkalíf sitt í fjölmiðlum....