ekki heldur sniðugt að æfa mikið og sleppa því að drekka vatn, hef slæma reynslu af því, leið yfir mig í samfélagsfræðitíma daginn eftir..frekar kjánalegt haha, og kennarinn fór alveg í kleinu
Þetta kom fyrir vinkonu mína núna nýlega og samtals þarf hún að hvíla í um það bil 2 mánuði..það eru reyndar ekki liðnir 2 mánuðir síðan þetta gerðist..en hún segir að hún megi byrja að skokka smá eftir tveggja mánaða hvíld en þetta fer náttúrulega eftir hversu alvarlegt þetta er..ég myndi bara tala við lækni og spyrja hann um þetta nánar..
Ég æfi fimleika og hef æft í um það bil fimm ár og já það er alveg slatti af þreki..ég kvartaði alltaf fyrst en núna þakka ég þjálfurunum fyrir að hafa látið okkur gera svona mikið þrek :) bara svona ef þér finnst slæmt að gera þrek :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..