Vitið þið, varðandi öll þessi comment sem að þú, ég og aðrir fáum varðandi göt og flúr og allt það, og hvort að maður sjái ekki eftir þessu þegar að maður er gamall, þá segi ég nú bara: Maður á ekki að pæla í þessu hvernig þetta verður eftir 30-40-50 ár. Ekkert í þessu lífi er sjálfgefið, og ég geri engan veginn ráð fyrir að lifa til áttræðs, þó að ég geri heldur ekki ráð fyrir að þessu sé lokið á næsta ári. Take nothing for granted ;)