Ég var áðan að fletta í gegnum gömul blöð og rakst á Undirtóna frá því í fyrra. Í 51. tbl Undirtóna árið 2001 (rétt áður en FOTR kom út) var einkaviðtal við Peter Jackson sem blaðamaður Undirtóna tók. Peter Jackson segir að Íslendingar eigi einhvern þátt í ævintýrum Tolkiens og hann er spurður um hvort honum hafi komið til hugar að taka upp myndirnar á Íslandi og hann svarar því að hann hafi aldrei komið til Íslands og það sé svo langt í burtu. Ég nenni ekki að pikka inn allt viðtalið og...