Ég veit það ekki, kannski eru þetta bara samfélagslegir staðlar sem eru að stjórna hugsun minni núna, en það fer samt allt eftir samhenginu. Ég flokka þetta undir að “dópa” og djamma. Ef þú ert að dópa hvort sem það er áfengi eða ndma t.d. ef þú ert einn heima hjá þér og ákveður að drekka til að láta þér líða betur, það er svona… bleh… en ef þú ert að fara á fyllerí með vinum þínum, jei voða gaman, djamm eða að fara á rave með vinum þínum að hlusta á einhverja mega tónlist undir áhrifum...