Ég var að keyra í einu af úthverfum borgarinnar og ég er á undan strætisvagni, þegar við keyrum fram hjá biðskýli einu koma hlaupandi tvær ungar stúlkur með sundpoka að virtist, að skýlinu rétt í þann mund er vagninn fer fram hjá. Ég sé greinilega að vagnsstjórinn tekur eftir stúlkunum en horfir bara á þær og keyrir framhjá. Maður hefur nú oft sem betur fer séð vagnstjóranna stoppa þegar fólk er rétt að missa af vagninum. Þetta var ekki mikil umferðargata, Þarna var enginn á ferð, nema ég...