Gamalt dót sem ég fann á blogginu mínu, ákvað að deila því bara með ykkur elskunum :) Síðustu daga, hef ég mikið verið að hugsa. Eiginlega það eina sem ég er búinn að vera að gera er að hugsa um hitt og þetta á þessum leiðinlega tíma, smá words of wisdom ;) Sambönd.. Allt sem ég tala um kemur frá mínu sjónarhorni, og ber þar að nefna að ég var í sambúð í langan tíma.. Það er einn allsherjar misskilningur sem að fólk tekur að sér, fólk getur haldið það að sambönd gangi snurðulaust fyrir sig...