Mér finnst ekkert að því að bjóða góðan daginn og þakka fyrir og svoleiðis, það er bara sjálfsagður hlutur. En sjálfur þoli ég ekki þegar afgreiðslufólk vill slá upp einhverjum samræðum við mig, ég er ekkert kominn þarna til að spjalla við einn eða neinn, heldur bara versla það sem ég kom til að kaupa og fara síðan.