Dominos Pizza: Einhverntíman var eitthvert bíó-tilboð í gangi hjá þeim; Ef maður pantaði einhverja pizzu hjá þeim og brauðstangir með, myndi maður fá bíómiða (fyrir tvo) með. Ég vissi ekki af þessu, en var búinn að panta tvær stórar pizzur og brauðstangir. Þegar ég kom að ná í pizzurnar, rak ég augun í tilboðið, og jafnframt hinn stóra bunka af bíó-frímiðum sem lágu bak við borðið. Ég benti á miðana, og sagði við afgreiðsluguttann “Fæ ég ekki einn svona? Niííí, það er bara á tilboðinu sko!...