Ég hef nú ekkert verið að fylgjast með rafmagninu í tölvunni og get það heldur ekki þarsem ég á engin mælitæki til þess. En ég hef verið með þrjár mismunandi rafmagnssnúrur á tölvunni þannig að ekki eru þetta þær og ég hef líka verið með hana í sambandi á fjórum mismunandi stöðum og þar af einu sinni í annarri íbúð þarsem ég var að LANa og þetta hefur komið upp á öllum stöðunum þannig að ekki er það veggtengið. Fleiri hugmyndir?
Ætlaði bara að bæta við að ég hef fengið frábæra þjónustu að öðru leiti hjá Tölvuvirkni. Ég mæli með þeim fyrir alla. Því miður þá geta þeir ekki, frekar en nokkur annar, gert við bilun sem þeir ekki finna. Kveðja, Shilna
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..