Ég er nú ekki vanur að byrja umræður hér á Huga en lengi skemmt mér við að skoða umræður hérna. Í kvöld stóðst ég hins vegar ekki að nöldra svolítið yfir stafsetningu og málfari í greinum og svörum hugara. Ég tek það fram að ég er ekki að reyna að særa fólk með þessu nöldri. Það sem menn láta frá sér nú á dögum er vægast sagt hörmulegt. Nú er ég ekki að tala um alla notendur en ef eitthvað er, þá þykir mér þetta hafa aukist á síðustu misserum. Að sjálfsögðu er eðlilegt að stöku stafsetninga-...