Höfum við einhvern tímann spáð í því hversu SLÆM landkynningin þetta er fyrir okkar ágæta land? Við eigum mikið af frambærilegum tónlistarmönnum, en alltaf er mesta ruslið sent í þessa fáránlegu keppni. Þegar Druslan frá Haukdal er búinn að hafna í neðsta sæti í þessari keppni fyrir okkar hönd er kominn tími til að breyta um stíl. Hvers vegna ekki að senda okkar hæfileikaríkustu tónlistamenn… Björk, Sigurrós, Megas, Ske eða bara Steindór Andersen með sínar þjóðlegu rímur! Það væri eitthvað...