Ég hef oft velt því fyrir mér hvað gerir karlmenn girnilega í augum kvenna, hvað er það sem skilur kvennagullið frá einfaranum. Sjálfstraust, gullhamrar, ákveðni eða er það líkaminn sem ræður öllu á endanum? Hárlaus líkami sem endurspeglar smástrákinn sem konur vilja passa uppá, og svo loðnir karlmenn sem hafa löngum verið ímynd töffarans. Margir af kynþokkafyllstu karlmönnum heims eru loðnir og vel það. Baldwin bræðurnir, Stephen Dorff, Harrison Ford, Ed Harris, Chris Issak, Jon Bon Jovi...