Þetta var eins og hvert annað kvöld. Pabbi hafði farið og leigt mynd á meðan mamma eldaði kvöldmat. Það var fiskur í raspi. Pabbi kom heim með óvæntan glaðning, það var myndin Ghost- Busters. Ég var fimm ára og hafði aldrei séð hryllingsmynd áður í lífi mínu. Spennan var yfirgnæfandi. Mér leið eins og stórum strák. Hann skellti henni í myndbandstækið, við settumst öll í litla brúna sófann og breiddum teppi yfir okkur. Ég átti erfitt með að skilja þetta tungumál sem þeir töluðu, pabbi sagði...