Mér fannst þetta ágætis mót, skipulagningin var samt ekkert til að hrópa húrra fyrir, mér fannst mótið 2002 að mörgu leyti mun skemmtilegra og Orka jarðar er ekkert sem gerir mann mjög spenntan, að mínu mati var það veðrið og skemmtilegt fólk sem reddaði þessu Landsmóti alveg. En tókuð þið eftir að það var búið að skipta um fána hjá bæði Kópum og Klakki? Það var búið að setja gaypride fána hjá Kópum og Mjólk er góð hjá Klakki… ég verð að viðurkenna að mér fannst það mjög fyndið :D