Króatar sigruðu Spánverja, 39:37, í tvíframlengdum undanúrslitaleik á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Lissabon í kvöld. Það verða því Þjóðverjar og Króatar sem leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn á morgun en Spánverjar mæta Frökkum í leik um 3. sætið. Leikurinn var geysilega spennandi og sveiflukenndur. Spánverjar voru með örugga forystu í hálfleik, 14:9, og komust í 20:15. Króatar skoruðu sjö mörk í röð og voru síðan yfir, 28:25, þegar skammt var eftir. Spánverjar skoruðu...