Við vorum kosnir í ráð myndbandafélags MH 2002, ég, gústi (Deeq hér á huga), Andri Ó, Steingrímur K. (Ókind) og Ingi (einnig úr Ókind) og eitt það alstærsta verkefni sem myndbandafélag fær er að dæla út busamynd. Ég veit ekki hvernig busamyndafyrirbærið er í öðrum skólum, en í MH þá er busadagurinn þannig að frá morgni er busað, síðan í hádegi er hringt inn á sal og horft er á busamyndina og síðan er gengið uppá Beneventumklett í Öskjuhlíð fyrir ávarp frá forseta og inntöku í skólann....