Það er alveg með ólíkindum að á Íslandi, í nútíma þjóðfélagi, geti menn keypt lögregluna eins og þjóðin varð vitni að í gærkvöldi þegar Fischer kom til landsins. Þvílík ósvífni. Páll Magnússon ullar framan í aðra stuðningsmenn Fiscers og slær sig til riddara með því að fá lánaða þotuna sem Jón Ásgeir og hinir Baugadrottnarnir (sem eiga jú Stöð 2) hafa afnot af og skipar svo lögreglunni að halda “óæskilegum fjölmiðlum” frá Fischer til að Stöð 2 geti náð einhverjum einkaviðtölum og verið með...