Ha, ha - nú sofna ég, fyrst svona er dauðahljótt; svo hitti ég í draumi drottninguna í nótt. Þá gef ég henni kórónu úr klaka á höfði sér. Hún skal fá að dansa eins og drottningu ber. Svo gef ég henni svarta slæðu að sveipa um líkamann, svo enginn geti séð, að ég svívirti hann. Svo gef ég henni helskó, hitaða á rist, og bind um hvíta hálsinn bleikan þyrnikvist. Svo rjóðra ég á brjóst hennar úr blóði mínu kross og kyssi hana í Jesú nafni Júdasarkoss. Svo dönsum við og dönsum og drekkum eitrað...