Eins og alþjóð veit er stétt íslenskra barþjóna rómuð fyrir slaka þjónustulund og almenna prímadonnustæla við barsýslu. Þetta er leiðinda mál og löngu kominn tími til að taka þá takmörkuðu sérfræðiþekkingu sem þessir sveittu-chocko-gaurar hafa yfir að ráða og miðla henni til hins almenna áfengisáhugamanns. Ég var að testa snilldarlega vit/SMS þjónustu sem kallast Barinn, sem gerir manni kleyft að fá allskonar sófistikeruð hanastéls- og skot- uppskriftir sendar með SMS í farsímann. Nú geta...