Fyrir utan ofangreindar athugasemdir fannst mér myndin í nánast alla staði mjög góð. Tónlistin var góð alveg í gegn og sem betur fer var hobbit lagið nánast ekkert notað (ég get ekki að því gert, mér finnst það hræðilegt lag!). Útlit og cast-ið óaðfinnanlegt. Í þetta skipti kom Eowyn mér mest á óvart, hún passaði nokkuð vel í hlutverkið fannst mér. Hún var kaldari í bókinni en mér fannst hún samt koma vel út, betur en Arwen (í FOTR var það Sean Bean sem kom mér mest á óvart). Ents komu...