Þú ert bólgin í nokkra daga, kannski 2-3, annars mismunandi eftir fólki, þannig að það er best að lifa á súpu bara í þá daga og éta íbúfen. Svo hverfur þetta bara. Þarft bara að skola fyrstu vikurnar meðan þetta er að gróa og þú þarft líka að skola þó það sé bara eftir súpu. Best að vera bara ekkert að fikta í lokknum og þá fær maður ekki þennan kæk. Ég byrjaði ekki á þessu fyrr en ég var búinn að vera með lokkinn í einhverja mánuði og gerði þetta sjaldan.