Þeirra “ástæða” var sú að eitthvað af þessum kirkjum voru reistar á stöðum sem voru notaðir sem heiðnir blótsstaðir til forna. Annars veit ég ekki mikið um þessar kirkjubrennur þeirra og hef lítið kynnt mér, aðallega vegna leti þegar kemur að upplýsingaleit.
Heyrði einmitt um mann sem lenti í því. Hann dýrkaði Marilyn Manson og lét tattoo-vera nöfnin á öllum í hljómsveitinni á handlegginn á sér. Síðan hætti hann að fíla M. Manson og lét tattoovera handlegginn á sér svartan bara til að fara yfir nöfnin :/
Ég var nú bara 16 ára þegar dyraverðirnir fóru að opna fyrir mig og bjóða mig velkominn. Er 18 ára núna :P Vitiði samt hvort það á að kosta eitthvað inn?
Getur beðið Valda um að panta. Mæli líka með . www.napalmrecords.com. Þeir eru fínir og ég held að þeir eigi bolinn sem þú ert að leita að.. Þori samt ekki að fullyrða það :/
Eftir því sem ég best veit fara þeir aðeins fram á skírlífi ef að maður er ekki giftur. Ef maður giftir sig má maður stunda kynlíf en mér skilst að þeir banni notkun á getnaðarvörnum því að þeir álíta að kynlíf sé einungis til þess að geta afkvæmi.
hinn gaurinn sem singur? Hver leyfði þennan kork? Þetta er bæði nánast innihaldslaust og það eru fleiri stafsetningarvillur í þessu heldur en í BA ritgerð sem væri skrifuð af 10 ára lesblindu barni!
En það eru einhverjir sem er ekki sama og þar á meðal ég :P Það að valmöguleikinn “ég veit ekki hverjir þetta eru” sé að fá 70% segir sitt um hvað fólk á þessu áhugamáli veit… Við skulum segja lítið til að móðga engan, um eina stærstu og þekktustu deathmetal hljómsveitina :S Það er náttúrulega engan veginn sniðugt!
Mér finnst Barnes ágætur og textarnir hans eru fínir. Nokkuð sexy og svona :P Annars sagði gaur sem ég fór á fyrirlestur um dauðarokk (bara deathmetal) um Barnes að það væri eins og hellisbúa hefði verið hent inn í stúdíó og sagt að öskra. Mér finnst CC stöffið með honum fínt en ef maður hlustar til dæmis á Six Feet Under þá má segja að hann sjúgi súran skaufa. Ég neitaði að trúa því að þetta væri hann fyrst þegar mér var sagt það. Ég hefði valið báðir ef það hefði verið í boði en ég man...
Þetta finnst mér mjög svo sorglegt. Þoli ekki að sjá þegar fólk er að kommenta í gestabækur til að segja manni að kommenta hjá sér. Lenti í því um daginn að það voru allavega 3 aðilar sem kommentuðu hjá mér til að biðja mig um að kommenta hjá sér því þeir voru að safna í ákveðna tölu fyrir ákveðinn tíma… Það finnst mér mjög asnalegt.. Enda býst ég við að þetta hafi verið gelgjur :/
Valdi er á vitastígnum. Ef þú veist hvar Hókus Pókus er á Laugaveginum labbaru að næstu götu sem kemur upp af Laugaveginum. Það er einhver búð með ullarpeysur á horninu, síðan smá innskot og svo Valdi. Getur ekki farið framhjá þér!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..