Þetta var fokking snilld! Geðveikir tónleikar og meðlimir CC voru geðveikt almennilegir þegar þeir komu. Alex Webster brosti svo mikið þegar hann heilsaði mér að ég varð næstum hræddur við hann. Ég hélt líka að George Fisher væri geðveikt svakalegur, en þegar ég heilsaði honum brosti hann og var voða kátur. Rob Barret og Pat O'Brien voru líka hressir og spjölluðu aðeins. Já, það er yndislegt að vera að vinna á tónleikum með einni af uppáhaldshljómsveitunum sínum og hafa möguleika á að spjalla við þá!