Ég hlusta á flest allt annað en fjöldaframleitt popp, óperur, techno, trance og hardcore. Hef mjög gaman af því að hlusta á sinfóníur, og þá helst hægar og þungar. Drum'n bass og dubstep er heillandi, eins og sumt annað electro dót. Dótið sem Ulver gerði eftir að þeir hættu í metalnum er frábært. Gjöll finnst mér eðall (dark ambient/noise/eitthvað). Sumt rapp fíla ég rosalega, en ég er samt mjög picky á það.