Mér sýnist þú vera búinn að fá ágætis ráðleggingar. Mæli með að þú farir bara eftir því og því sem gatarinn segir og þá ætti allt að vera í lagi. Ekkert að mínu gati, nema að það er pínulítið skakkt. Maður tekur samt ekkert eftir því nema það sé skoðað vandlega. Það var líka mér sjálfum að kenna. Sessa mælti með því að ég byrjaði á pinna en ég ákvað að fá mér hring, þó svo að hún væri búin að segja mér að það gæti orðið skakkt.