Síðastliðin fimmtudag var ég að ganga niður Hverfisgötuna eins og ég geri oft, enda er ég á móti hinum hrokafulla laugarvegi og neita að nota hann og geng þar af leiðandi niður Hverfarann, Hverfisgatan er drottning miðbæjarins. En þannig er mál með vexti að þegar ég var hálfnaður niður eftir sá ég fólk vera að kríta á hellurnar, þeir lituðu aðra hverja hellu hvíta og hinar svartar. Ég fylgdist með þeim furðu lostinn og það leið ekki langur tími þar til þeir hringdu í einhverja félaga sína og...